Fótbolti

Courtois: Svaraði gagnrýni og sýndi af hverju ég er hér

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Courtois fagnar með liðsfélögunum í leikslok
Courtois fagnar með liðsfélögunum í leikslok Vísir/Getty
Markvörðurinn Thibaut Courtois átti frábæran dag þegar Belgar sigruðu Brasilíu í 8-liða úrslitum á HM . Hann segist hafa fengið ósanngjarna gagnrýni í vetur en sýndi gæði sín í þessum leik.

„Þetta er frábær tilfinning,“ sagði Courtois eftir leikinn.

„Þetta lið vill vinna hvern einasta leik sem það fer í, fyrir leikinn gegn Englandi var talað um að það væri betra að tapa en við unnum, við höfum mikið sjálfstraust á okkar leik.“

Courtois átti margar frábærar markvörslur í leiknum og varði meðal annars meistaralega frá Neymar undir lok leiksins.

„Ég hef fengið ósanngjarna gagnrýni á þessu ári en í dag þá sannaði ég hver ég er og afhverju ég er hér.“

„Ég veit að Neymar vill snúa boltanum á ákveðinn hátt, ég var tilbúinn og náði að verja vel. Taktíska upplagið hjá okkur var frábært. Við fundum það á okkur að þetta var okkar dagur,“ sagði Thibaut Courtois.

Belgar mæta Frökkum í undanúrslitum á þriðjudaginn.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×