Formúla 1

Hamilton á ráspól í Sil­verst­one

Einar Sigurvinsson skrifar
Lewis Hamilton.
Lewis Hamilton. vísir/getty
Lewis Hamilton, ökukappi Mercedes, verður á ráspól þegar ræst verður í breska Sil­verst­one-kappakstrinum á morgun.

Hamilton setti nýtt brautarmet þegar hann ók á 1:25.892. Næstur á eftir honum kom Sebastian Vettel á Ferr­ari en hann ók á 1:25.936. Liðsfélagi hans, Kimi Räikkönen, var með þriðja besta tímann 1:25.990.

Valtteri Bottas á Mercedes varð síðan á fjórða besta tímanum, 1:26.217.

Kappaksturinn á morgun er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst hann klukkan 12:50




Fleiri fréttir

Sjá meira


×