Tónlist

Föstudagsplaylisti Axels Björnssonar

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Axel Björnsson, gítarleikari og söngvari Pink Street Boys.
Axel Björnsson, gítarleikari og söngvari Pink Street Boys. vísir/aðsend
Axel Björnsson setti saman föstudagslagalista fyrir Vísi að þessu sinni, en hann er meðlimur háværustu rokksveitar landsins, Pink Street Boys. Þeir hafa vakið mikla athygli fyrir bílskúrsrokk sitt og eru í sérflokki hvað það varðar á landinu. Önnur plata þeirra, Smells Like Boys, kom út í fyrra hjá 12 tónum.

Þeir spila einmitt á Secret Solstice í kvöld klukkan 20:20 í kvöld. Axel segist spenntur og getur varla beðið eftir kvöldinu. „Annars erum við að taka upp og semja okkar næstu plötu og svo erum við að spila í brúðkaupi hjá vini okkar Jack Churro í Kansas City í júlí.“ Þeir hafa ekki spilað á mörgum tónleikum á Íslandi undanfarið og það virðist ekki vera að breytast á næstunni. 

„Þessi lagalisti er bara týpískur í teitið hjá mér á föstudagskvöldi,“ segir Axel um lagavalið. Skítug gítarbjögun einkennir mikið af lögunum á listanum og gamaldags rokk og ról er í hávegum haft.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×