Fótbolti

Segir að Eden Hazard sé nú jafngóður og Messi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eden Hazard.
Eden Hazard. Vísir/Getty
Belgar hafa mikla trú á landsliðsfyrirliða sínum Eden Hazard og þá sérstaklega aðstoðarþjálfarinn Graeme Jones sem fær uppsláttinn í belgíska blaðinu Voetbalwereld í morgun.

Graeme Jones segir í viðtalinu að Eden Hazard sé nú orðinn jafngóður leikamaður og Lionel Messi.

Eden Hazard hefur vissulega átt mjög fínt heimsmeistaramót til þessa og Lionel Messi skoraði ekki sitt fyrsta mark fyrr en í leik upp á líf eða dauða í gærkvöldi.

Eden Hazard sjálfur hefur alltaf hafnað slíkum samanburði og segir að Messi sé á annarri plánetu og því ósnertanlegur.

Aðstoðarþjálfarinn vill hinsvegar ólmur bera þá saman og slá í. Þetta bendir belgíski blaðamaðurinn Kristof Terreur á eins og sjá má hér fyrir neðan. Það þarf ekki að skilja mikla flæmsku til að skilja opnufyrirsögn Voetbalwereld í morgun.





Eden Hazard skoraði tvö mörk í síðasta leik Belga og lagði upp eitt mark í þeim fyrsta. Hann er því búinn að koma að þremur mörkum í fyrstu tveimur leikjunum og Belgar eru með fullt hús sitga og markatöluna 8-2.

Eden Hazard kom einnig að marki í tveimur síðustu undirbúningsleikjum belgíska liðsins fyrir HM sem voru öryggir sigrar á HM-liðum Egypta og Kosta Ríka.

Eden Hazard skoraði líka sigurmark Chelsea í bikarúrslitaleiknum í maí og var með 12 mörk og 4 stoðsendingar í 34 leikjum í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×