Lífið

Birkir Már reiknar ekki með því að horfa á myndina um sjálfan sig

Kolbeinn Tumi Daðason í Kabardinka skrifar
Laugardalsvöllur, fótbolti, elding og keilur koma fyrir á veggspjaldinu fyrir myndina.
Laugardalsvöllur, fótbolti, elding og keilur koma fyrir á veggspjaldinu fyrir myndina. Síðasta áminningin
Síðasta áminningin, ný íslensk heimildarmynd eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson og Guðmund Björn Þorbjörnsson, verður frumsýnd í Bíó Paradís í kvöld. Þótt myndin tengist fótbolta er ekki einblínt á íþróttina sem slíka heldur ýmislegt í kringum hana.

Hafsteinn Gunnar leikstýrði meðal annars kvikmyndinni Undir trénu og Guðmundur Björn vakti athygli fyrir útvarpsþætti sína Markmannshanskarnir hans Albert Camus. Þar var fjallað um íþróttir frá óvenjulegu sjónarhorni og slógu þættirnir í gegn. 

Ekki svo fótboltatengt

Þjóðþekktir Íslendingar eru teknir tali í þáttunum auk þess sem landsliðsmennirnir Birkir Már Sævarsson, Jón Daði Böðvarsson og Theodór Elmar Bjarnason eru í stórum hlutverkum. Þeir eiga allir sögu að segja en Birkir Már var ekki meðvitaður um að frumsýna ætti myndina í dag þegar blaðamaður ræddi við hann í gær.

Birkir Már, sem er einn tveggja leikmanna Íslands sem spilar í Pepsi-deildinni, er ekkert gefinn fyrir sviðsljósið þótt hann mæti í viðtöl eins og aðrir og rúllar þeim upp.

„Þetta var allt í lagi, þeir héngu með mér heilan dag og við ræddum málin. Það er ekki vanalegt fyrir mig að vera í svona hlutverki,“ segir landsliðsmaðurinn. Umræðan sneri ekki mikið að fótbolta.

„Þetta var ekki mikið fótboltatengt heldur bara spjall um allt mögulegt,“ segir Birkir.

Ekkert heyrt um landsliðssýningu

Strákarnir í landsliðinu hafa stundum fengið að horfa á bíómyndir á ferðalögum sínum erlendis, íslenskar myndir sem verið er að frumsýna á sama tíma á Íslandi. Ætli það verði landsliðssýning?

„Ég veit allavega ekki af því ef svo er. Ég ætla allavega ekki að horfa,“ segir Birkir Már og hlær.

„Ég get ekki horft á sjálfan mig í viðtölum þannig að ég á aldrei eftir að sjá þessa mynd nema að planta mér með hinum strákunum,“ segir Birkir Már og á þá væntanlega við þá Jón Daða og Theodór Elmar sem einnig eru í hlutverkum í myndinni.

Síðasta áminningin hefur nú þegar verið seld til norsku og dönsku ríkisstöðvanna.

Birkir Már ræddi myndina frekar í Akraborginni á X-inu í gær en upptökuna má sjá hér að neðan.

Vísir er með öflugt teymi í Rússlandi sem verður með ítarlegan fréttaflutning af íslenska liðinu á HM. Fylgist með á samfélagsmiðlum okkar - á FacebookTwitter og Instagram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×