Innlent

Grunaður um kynferðisbrot á Akureyri

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Einn var handtekinn á Akureyri í nótt grunaður um kynferðisbrot.
Einn var handtekinn á Akureyri í nótt grunaður um kynferðisbrot. Vísir/Eyþór
Karlmaður er í haldi lögreglunnar á Akureyri grunaður um kynferðisbrot. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var hið meinta brot framið á tjaldsvæðinu í Réttarhvammi sem útbúið var fyrir hina svokölluðu Bíladaga haldnir eru á Akureyri um helgina.

Lögreglan hefur manninn í haldi og verður hann yfirheyrður síðar í dag að sögn varðstjóra hjá lögreglunni. Töluverður erill var hjá lögreglu í nótt en þrír voru handteknir í nótt vegna ölvunar og óspekta.

Hefur lögregla einnig haft afskipti af þó nokkrum ökumönnum vegna hraðakasturs en lögregla er með aukinn viðbúnað vegna hátíðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×