Innlent

Stal ökuskírteini og tveimur bíllyklum en lét bílana vera

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið
Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið Fréttablaðið//GVA
Talsverðum verðmætum var stolið úr íbúðarhúsnæði í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Meðal þess sem stolið var var ökuskírteini húsráðenda sem og tveir bíllyklar, en bílarnir voru þó látnir vera.

Meðan húsráðandi svaf var farið inn um glugga á húsnæðinu og þaðan stolið fartölvu af Macbook tegund, Nicon ljósmyndavél, tugum þúsunda króna og nokkru af dýrum handverkfærum.

Lögreglan rannsakar málið, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×