Lífið

Dave Grohl sviðsetti eigið fótbrot þegar hann mætti aftur til Gautaborgar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mjög svo fyndið atvik.
Mjög svo fyndið atvik.
Fyrir tæplega þremur árum fótbrotnaði söngvarinn Dave Grohl á sviði á tónleikum með Foo Fighters í Gautaborg.

Þar féll hann af sviðinu og þeim afleiðingum að hann brotnaði nokkuð illa. Í gærkvöldi sneri hann aftur til Gautaborgar og kom fram á tónleikum með sveitinni.

Grohl er greinilega mikill húmoristi og setti hann á svið svipað atvik til að hrekkja mörg þúsund manns sem voru á tónleikunum. Hann fékk til liðs við sig áhættuleikara sem hrundi niður af sviðinu í upphafi tónleikana, og það á nákvæmlega sama stað og fyrir þremur árum.

Hér að neðan má sjá þennan frábæra hrekk.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×