Lífið

Viðbrögð fjögurra ára hjólreiðakappa við framúrakstri slá í gegn

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Myndband af viðbrögðum fjögurra ára gamals hjólreiðakappa við framúrakstri vörubílstjóra í Skotlandi hafa vakið mikla athygli. Horft hefur verið á myndbandið í meira en 700 þúsund skipti.

Á myndbandinu má sjá hina fjögurra ára gömlu Rhoda Jones úti að hjóla ásamt föður hennar Tom. Skyndilega kemur vörubíll í mynd sem tekur fram úr feðgininum.

Nýtti vörubílstjórinn sér allan veginn til þess að taka fram úr og gaf hjólreiðaköppunum nóg pláss. Var Rhonda mjög ánægð með þetta og þakkaði hún vörubílstjóranum kærlega fyrir sig, eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi.

Í samtali við BBC segir Tom, faðir hennar, að í ljósi þess hvað vörubílstjórinn var góður við þau, hafi hann sagt henni að þakka fyrir sig, sem hún og gerði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×