Lífið

Bakkaði tvo kílómetra til að komast úr vandræðum

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ljóst er að bílstjórinn er hörkubakkari
Ljóst er að bílstjórinn er hörkubakkari
Ótrúlegt þykir að ekki hafi orðið bílslys þegar ökumaður bíls bakkaði tæpa tvo kílómetra á miðjum þjóðvegi, umkringdur öðrum bílum.

Atvikið átti sér í Ohio í Bandaríkjunum og birtir Samgöngustofnun ríkisins myndband úr öryggismyndavélum á þjóðveginum, sem sjá má hér að neðan.

Þar má sjá hvernig bílnum er ekið eftir afrein, þaðan á fjölfarin gatnamót og svo áfram á hraðbrautinni, allt í bakkgír.



För ökumannsins endaði á bílastæði en yfirvöld í Ohio telja að bíllinn hafi verið fastur í bakkgír. Sé það rétt má telja að ökumaðurinn sé nokkuð lipur við stýrið






Fleiri fréttir

Sjá meira


×