Lífið

Lebron James heldur áfram að hunsa Guillermo

Stefán Árni Pálsson skrifar
Í fjögur ár hefur Guillermo mætt.
Í fjögur ár hefur Guillermo mætt.
Nú stendur yfir úrslitaeinvígið í NBA-deildinni og leiðir Golden State Warriors einvígið 3-0 gegn Cleveland Cavaliers. Þá vantar því aðeins einn sigurleik til að tryggja sér titilinn annað árið í röð.

Hinn skemmtilegi aðstoðarmaður Jimmy Kimmel, Guillermo, mætti á sérstakan fjölmiðladag fyrir úrslitaeinvígið á dögunum og spurði hann helstu íþróttastjörnur heims vægast sagt spjörunum úr.

Í fjögur ár í röð hefur Guillermo reynt að ná sambandi við Lebron James og hefur það ekki gengið vel hingað  til. Í ár var enginn breyting á því og nennti James ekki að ræða við Guillermo.

Menn greinilega ekki vanir svona viðtölum og var útkoman frábær eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×