Innlent

Fleiri en áður sækja um nám í menntavísindum og leikskólakennarafræðum

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Umsóknum í grunnnámi í allar verkfræðigreinar Háskólans fjölgar og aukinn áhugi er m.a. á lögfræði, næringarfræði og leikskólakennarafræði auk þess sem menntavísindin eru almennt í sókn.
Umsóknum í grunnnámi í allar verkfræðigreinar Háskólans fjölgar og aukinn áhugi er m.a. á lögfræði, næringarfræði og leikskólakennarafræði auk þess sem menntavísindin eru almennt í sókn. Vísir/Hanna
Mikil aukning er á umsóknum um nám í Háskóla Íslands. Ástæðan er stytting náms til stúdentsprófs segir rektor skólans. Þetta reyni á, en skólinn sé vel undirbúinn fyrir fjöldann.

Tæplega 5.000 umsóknir bárust um grunnnám í Háskóla Íslands fyrir komandi skólaár eða rúmlega ellefu prósent fleiri umsóknir en í fyrra. Fjöldi umsókna um framhaldsnám jókst einnig milli ára og nemur aukningin um 12,5 prósentum. Jón Atli Benediktsson segir að skólinn hafi undirbúið sig fyrir þessa miklu aukningu.

„Megin skýringin er nú endurskipulagning framhaldsskólans. Nú eru nemendur að útskrifast í svokölluðum tvöföldum árgöngum í meira mæli en áður. Ég segi það vegna þess að þetta hefur verið ferli sem hefur verið í gangi í nokkur ár en nú eru nokkrir stórir skólar að koma inn. Á næsta ári mun þetta halda áfram þegar síðustu stóru skólarnir, MR og MA, munu útskrifa tvöfalda árganga. Svo þetta er eitthvað sem við vissum af og kemur ekki á óvart;“ segir Jón Atli.

„Samkvæmt okkar spám bjuggumst við við sjö til tólf prósenta aukningu í umsóknum nýnema og við erum að sjá rúmlega ellefu prósenta aukningu.“

Er Háskóli Íslands tilbúinn til að taka á móti þessum fjölda?

„Þetta mun náttúrulega reyna á en við teljum að við munum geta gert þetta. Við erum búin að vera að skoða þetta á undanförnum misserum og við teljum að við getum gert þetta. Við leggjum mjög mikla áherslu á gæði í háskólastarfi og við höfum fjárveitingar. Við teljum okkur alveg geta gert þetta innan þess ramma sem við höfum.“

Umsóknum í grunnnámi í allar verkfræðigreinar Háskólans fjölgar og aukinn áhugi er m.a. á lögfræði, næringarfræði og leikskólakennarafræði auk þess sem menntavísindin eru almennt í sókn. Jón Atli segir þetta jákvæða þróun.

„Það eru ánægjulegar fréttir þarna inn á milli. Fjöldi umsókna í leikskólakennarafræði eykst um 60 prósent. Við sjáum að fjöldi nema í lögfræðiumsóknum eykst um 40 prósent og við sjáum líka að í öllum verkfræðigreinum eykst fjöldinn verulega. Svo þetta er mjög ánægjulegt að sjá að þarna eru greinar sem eru að koma mjög vel út.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×