Íslenski boltinn

Stórleikur Vals og Breiðabliks í 8-liða úrslitum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Patrick Pedersen leikur með Val
Patrick Pedersen leikur með Val vísir/vilhelm
Dregið var til 8-liða úrslita í Mjólkurbikar karla í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport nú rétt í þessu. Stórleikur umferðarinnar er viðureign Íslandsmeistara Vals og toppliðs Pepsi deildarinnar, Breiðabliks.

Valur og Breiðablik mættust síðastliðinn sunnudag í deildinni og Valsmenn fóru með 2-1 sigur.

Þór frá Akureyri fær Stjörnuna í heimsókn og FH fer á Akranes og mætir ÍA. Þá munu Víkingarnir frá Reykjavík og Ólafsvík berjast í Fossvoginum.

8-liða úrslit Mjólkurbikars karla:

24. júní: Þór - Stjarnan

25. júní: Valur - Breiðablik

25. júní: ÍA - FH

19. júlí: Víkingur R. - Víkingur Ó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×