Íslenski boltinn

Sigurbjörn tryggði Valsmönnum sigurinn í Grindavík | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Grindavík og Valur mætast í kvöld í fimmtu umferð Pepsi-deildar karla í fótbolta en leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD sem hefst klukkan 19.00.

Grindjánar fara vel af stað í deildinni en þeir eru í þriðja sæti fyrir leiki kvöldsins með sjö stig og eru aðeins búnir að fá á sig tvö mörk í fyrstu fjórum leikjum mótsins.

Valsmenn hafa aftur á móti ekki farið jafnvel af stað og búist var við en Íslandsmeistararnir eru aðeins búnir að vinna einn leik af fjórum. Þeir eru þó vissulega taplausir með sex stig í fimmta sæti.

Til að hita upp fyrir leik kvöldsins má sjá hér að ofan allt það helsta úr fimmtán ára gömlum leik liðanna í fyrstu umferð Landsbankadeildar karla frá því 2003 en þá unnu nýliðar Vals góðan 2-1 sigur.

Ólafur Örn Bjarnason kom Grindavík yfir með marki úr vítaspyrnu á elleftu mínútu sem ungur Ray Anthony Jónsson fiskaði á Ólaf Þór Gunnarsson í marki Vals. Alfreð Elías Jóhannsson, núverandi þjálfari kvennaliðs Selfoss, heimtaði rautt en Jóhannes Valgeirsson, dómari, lét gult spjald duga.

Jóhann Hilmar Hreiðarsson jafnaði metin úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur en goðsögnin Sinisa Kekic braut á Jóhanni. Grindvíkingar mótmæltu mikið en allra manna rólegastur var Óli Stefán Flóventsson, núverandi þjálfari Grindjána.

Jóhann kom svo aftur við sögu í sigurmarkinu en hann þrumaði þá boltanum í fyrirliðann Sigurbjörn Hreiðarsson og þaðan í netið en markið skráist á Sigurbjörn sem er aðstoðarþjálfari Vals í dag. Flottur sigur nýliðanna í fyrstu umferð.

Valur féll samt sem áður úr deildinni í þriðja sinn á fimm árum í lok sumars 2003 en kom aftur upp fyrir tímabilið 2005 þar sem að það hafnaði í öðru sæti og varð bikarmeistari. Valsmenn urðu svo Íslandsmeistarar tveimur árum síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×