Íslenski boltinn

Meistararnir kláruðu KR í síðari hálfleik

Anton Ingi Leifsson skrifar
Borgarstjórinn var á skotskónum í kvöld.
Borgarstjórinn var á skotskónum í kvöld. vísir/eyþór
Þór/KA vann 2-0 sigur á KR í fjórðu umferð Pepsi-deildar kvenna en leikið var norðan heiða í kvöld. Bæði mörk leiksins komu í síðari hálfleik.

Það var markalaust í hálfleik en eftir 53. mínútur kom fyrsta markið. Það reyndist sjálfsmark og Íslandsmeistararnir komnir með forystu.

Það var svo borgarstjórinn, Sandra Stephany Mayor Gutierrez, sem skoraði síðari markið fjórum mínútum fyrir leikslok og lokatölur 2-0 sigur Þór/KA.

Þór/KA er því með fullt hús stiga eftir leikina fjóra en KR er með þrjú stig eftir fjóra leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×