Innlent

Bein útsending: Kynferðisbrot í brennidepli

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Að borðinu hafa verið kallaðir sérfræðingar og fræðimenn til að leggja sitt á vogarskálarnar til að stuðla að vandaðri meðferð mála vegna kynferðisbrota og uppbyggilegri umræðu um málaflokkinn.
Að borðinu hafa verið kallaðir sérfræðingar og fræðimenn til að leggja sitt á vogarskálarnar til að stuðla að vandaðri meðferð mála vegna kynferðisbrota og uppbyggilegri umræðu um málaflokkinn.
Háskólinn í Reykjavík, Háskólinn á Akureyri og dómsmálaráðuneytið standa fyrir ráðstefnu í HR um kynferðisbrot þar sem fjölmörg áhugaverð erindi eru á dagskrá.

Að borðinu hafa verið kallaðir sérfræðingar og fræðimenn til að leggja sitt á vogarskálarnar til að stuðla að vandaðri meðferð mála vegna kynferðisbrota og uppbyggilegri umræðu um málaflokkinn. Frummælendur koma úr háskólasamfélaginu og réttarvörslukerfinu, auk þess sem móðir eins þolanda mun deila reynslu sinni.

Horfa má á beina útsendingu hér að neðan. Þar fyrir neðan má nálgast dagskrá ráðstefnunnar.

Dagskrá:

Svala Ísfeld Ólafsdóttir sérfræðingur í dómsmálaráðuneytinu og dósent við lagadeild HR.

Sigríður Andersen dómsmálaráðherra.

Halla Gunnarsdóttir formaður stýrihóps um heildstæðar úrbætur að því er varðar kynferðislegt ofbeldi.

Þögnin rofin á samfélagsmiðlum

Bryndís Björk Ásgeirsdóttir dósent og Rannveig S. Sigurvinsdóttir aðjúnkt við sálfræðisvið HR.

Karlar sem þolendur kynferðisbrota

Sigrún Sigurðardóttir lektor og formaður Rannsóknarmiðstöðvar gegn ofbeldi við HA og Elísa Dröfn Tryggvadóttir BA í sálfræði og MS í heilbrigðisvísindum.

Reynsla kvenfanga af kynferðisofbeldi

Arndís Vilhjálmsdóttir geðhjúkrunarfræðingur og meistaranemi í heilbrigðisvísindum við HA

Börn sem þolendur

Þorbjörg Sveinsdóttir MSc í sálfræði og sérfræðingur í Barnahúsi.

Skýrslutaka af barni á rannsóknarstigi

Hulda Elsa Björgvinsdóttir yfirmaður ákærusviðs hjá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu.

Þolendur í viðkvæmri stöðu

Kristján Ingi Kristjánsson lögreglufulltrúi í kynferðisbrotadeild Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.

Framburður þolanda fyrir dómi í viðurvist ákærða

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara.

Nauðgun unglingsstúlkna: Athugun á málsmeðferðartíma frá kæru til dóms

Svala Ísfeld Ólafsdóttir sérfræðingur hjá dómsmálaráðuneytinu og dósent við lagadeild HR.

Vernd barna gegn dæmdum kynferðisbrotamönnum

Ólafur Örn Bragason réttarsálfræðingur.

„Hér með tilkynnist yður að málið hefur verið fellt niður“

Sigurþóra Bergsdóttir móðir.

Stuðningur við þolendur á lögreglustigi máls

Agnes Björk Blöndal lögfræðingur við embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra.

Reynsla þolenda af niðurfellingu máls

Karen Birna Þorvaldsdóttir BA í sálfræði og meistaranemi í heilbrigðisvísindum við HA.

Hlutverk réttargæslumanns þolanda

Kolbrún Garðarsdóttir lögmaður

Sálræn áföll og reynsla af kynferðisofbeldi meðal karlkynsfanga

Hrafnhildur Gunnþórsdóttir BA í sálfræði og MS í heilbrigðisvísindum.

Afplánun refsivistar og hvað svo?

Sólveig Fríða Kjærnested sálfræðingur og sviðsstjóri meðferðarsviðs Fangelsismálastofnunar

Menntun lögreglumanna og þekking á kynferðisbrotum og kynferðislegu ofbeldi.

Eyrún Eyþórsdóttir aðjúnkt í lögreglufræði við HA og fyrrverandi lögreglufulltúi í kynferðisbrotadeild Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. 

Fundarstjóri: Svala Ísfeld Ólafsdóttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×