Innlent

Úrhelli setur svip á kjördaginn

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Kjósendur ættu að fara að fordæmi þessa tveggja vegfarenda og klæða sig eftir veðri.
Kjósendur ættu að fara að fordæmi þessa tveggja vegfarenda og klæða sig eftir veðri. Vísir
Kosningadagurinn heilsar með sunnan strekkingi og rigningu, og er von á henni í miklu magni um landið sunnan- og vestanvert. Þar er möguleiki á að vatnavextir verið til trafala.

Því hefur Veðurstofan virkjað gula viðvörun á öllu Vestur-, Suður- og Suðvesturlandi í dag. Búast má við því að flætt geti um götur ef ræsi og niðurföll eru ekki opin. Þá má jafnvel gera ráð fyrir skriðuföllum.

Mest úrkoma verður á vatnasviði Hvítár í Borgarfirði og Hvítár í Árnessýslu.

Einkum má búast við miklum staðbundnum vatnavöxtum undir Eyjafjöllum og í Þórsmörk. Á vef Veðurstofunnar segir jafnframt að úrkoman verði mikil við Jökulsá á Sólheimasandi og eru ferðamenn á því svæði beðnir um að sýna aðgát. Vatn gæti safnast upp meðfram vegum og því gæti flætt yfir þá, einkum á Mýrdalssandi til dæmis við Múlakvísl. Þar sem úrkoman er ónvenjulega mikil ættu ferðalangar að sýna ítrustu varúð á þessu svæði

Nítján stiga hiti

Þegar kemur fram á daginn dregur úr vindinum, en ekki rigningunni, „ef til vill má þá hafa gagn af regnhlíf (það er ekki algengt á Íslandi)“ eins og gamansamur veðurfræðingur orðar það.

Áttin verður svo suðaustlæg á morgun og vindhraði nær ekki yfir 10 m/s nema í algjörum undantekningartilfellum að sögn veðurfræðings. Von er á að tvö úrkomusvæði renni sér yfir landið, svo á hverjum stað má búast við tveimur köflum af ágætlega drjúgri rigninu. Minnsta rigningin á morgun verður, líkt og í dag, á Norðaustur- og Austurlandi og þar verður áfram hlýjast.

Hitinn verður á bilinu 7 til 10 stig í rigningunni í dag, en allt að 19 stig norðaustantil síðdegis.



Veðurhorfur á landinu næstu daga



Á sunnudag:


Suðaustan 5-10 m/s, en 8-13 syðst á landinu. Víða rigning, en þurrt að mestu norðaustan- og austanlands eftir hádegi. Hiti 6 til 12 stig, en allt að 18 stig á Austurlandi. 

Á mánudag:

Breytileg átt 3-10. Rigning um mestallt land um morguninn, en styttir síðan upp og skýjað með köflum og yfirleitt þurrt eftir hádegi. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast á Austurlandi. 

Á þriðjudag:

Suðaustan 5-10 og rigning eða súld með köflum, hiti 8 til 13 stig. Bjartviðri norðaustantil á landinu og hiti 15 til 20 stig. 

Á miðvikudag, fimmtudag og föstudag:

Fremur hæg breytileg átt. Bjart á köflum og hlýtt, en sums staðar súld eða þokuloft, einkum við sjávarsíðuna og svalara veður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×