Innlent

Notkun parasetamóls á meðgöngu tengd við ADHD hjá börnum

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Á Íslandi er sala á hreinu parasetamóli, eins og til dæmis Panodil, Paratabs, Pinex, Paracet, Dolorin og fleiri,  minni en á hinum Norðurlöndunum.
Á Íslandi er sala á hreinu parasetamóli, eins og til dæmis Panodil, Paratabs, Pinex, Paracet, Dolorin og fleiri, minni en á hinum Norðurlöndunum. Vísir/Getty
Nýleg rannsókn í Noregi sýndi fram á að börn mæðra sem notuðu parasetamól í lengri tíma á meðgöngu, séu líklegri til að greinast með ADHD.  Er þar átt við notkun í meira en 29 daga en rannsóknin náði til 112 þúsund mæðra. Lyfjateymi landlæknis greinir frá þessu

„Í rannsókninni kom fram að konur sem notuðu lyfið í langan tíma, voru meira en tvisvar sinnum líklegri til að eignast börn með ADHD en mæður sem tóku ekki lyfið á meðgöngu. Rannsóknin sýndi jafnframt að hófleg notkun parasetamóls á meðgöngu hafði ekki marktæk áhrif.“

Á Íslandi er sala á hreinu parasetamóli, eins og til dæmis Panodil, Paratabs, Pinex, Paracet, Dolorin og fleiri,  minni en á hinum Norðurlöndunum og litlar pakkningar þessara lyfja eru seldar án lyfseðils. Hins vegar eru ávísanir parasetamóls í blöndum með t.d. kódeini mun fleiri hér á landi, samkvæmt upplýsingum frá embætti landlæknis.

Getur haft hættur í för með sér

„Árið 2017 fengu 24 þúsund karlar og 33 þúsund konur ávísað Parkódíni og/eða Parkódín forte og því er ljóst að notkun lyfjanna er mjög almenn hér á landi. Parkódíns og Parkódín forte (eða sambærilegum blöndum lyfjanna) meiri meðal kvenna en mun færri fá ávísað þar en hér á landi; sex sinnum fleiri notuðu parasetamól/kódein lyfin hér á landi en í Svíþjóð árið 2017.“

Hver tafla af Parkodín forte/Parkódíni inniheldur 500 mg af parasetamóli en ofskömmtun þess getur til dæmis haft skaðleg áhrif á lifur sem í versta falli getur leitt til lifrarbilunar.

„Þessi mikla notkun parasetamóls á Íslandi getur haft hættur í för með sér,“ segir í tilkynningunni frá lyfjateymi landlæknis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×