Lífið

Íslensk acapella útgáfa af Africa tekin upp í Húsdýragarðinum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skemmtilegt myndband við lagið.
Skemmtilegt myndband við lagið.
Kvartettinn Barbari hefur gefið frá sér nýtt myndband við acapella útgáfu af laginu Africa með Toto.

Myndbandið er tekið upp í Húsdýragarðinum og leika hin ýmsu húsdýr stór hlutverk í myndbandinu.

Barbari er skipaður þeim Gunnari, Páli, Stefáni og Þórði en strákarnir kynntust í kór Menntaskólans í Reykjavík árið 2014 og stofnuðu kvartettinn í kjölfarið.

„Við tökum að okkur söng við alls konar tilefni, allt frá afmælisveislum til árshátíða, og syngjum í bland íslensk og erlend lög,” segir Stefán.

Upp á síðkastið hefur kvartettinn gefið frá sér myndbönd við hin ýmsu lög á borð við Java Jive, Mr. Sandman, My Girl og Swanee.

„Við erum að fara í smá sumarfrí núna en ætlum að nýta seinni hluta sumars í æfingar og munum koma sterkir inn í haustið með nýuppfært prógram”.

Fleiri upplýsingar má finna á Facebook-síðu Barbara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×