Íslenski boltinn

Mia Gunter tryggði KR sigur á Selfossi

Einar Sigurvinsson skrifar
KR-ingar fagna.
KR-ingar fagna. vísir/ernir
KR sigraði Selfoss í annarri umferð Pepsi-deildar kvenna í dag. Leikurinn fór fram á Selfossi og lauk með 1-0 sigri KR.

Markið sem skildi liðin kom skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks þegar Mia Celestina Annete Gunter skoraði eftir undirbúning frá Betsy Hassett.

Þetta var fyrsti leikur KR í sumar þar sem leik þeirra við ÍBV í síðustu umferð hafði verið frestað. Selfoss er hinsvegar enn á stiga eftir tvo leiki, en liðið tapaði 8-0 fyrir Val í síðustu umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×