Innlent

Segir Reykjavík vera borg auðjöfra og ferðamanna

Hersir Aron Ólafsson skrifar
Oddviti Flokks fólksins í borginni segir að Reykjavík sé orðin borg auðjöfra og ferðamanna. Hún segir ástandið verra en nokkru sinni fyrr og vill setja fólkið í fyrsta sæti. Oddvitinn Kolbrún Baldursdóttir var ómyrk í máli þegar stefnumálin voru kynnt á Hotel Natura nú síðdegis. Húsnæðismál voru í forgrunni, en á þeim markaði segir hún að ástandið hafi aldrei verið verra.

„Aldrei verið verra. Ég er búin að vera sálfræðingur í 25 ár og ég hef fylgst með þessu. Ég er náttúrulega að ræða við fólkið í borginni og ég hef bara aldrei vitað annað eins. Sko, við erum að tala um hundruð fjölskyldur, öryrkjar, eldri borgarar fastir inni á Landspítalanum sem vantar þak yfir höfuðið,“ segir Kolbrún.

Bara fólk á ofurlaunum í 101

Hún segir venjulegu fólki hafa verið úthýst úr 101, þar sem fólk á ofurlaunum í rándýrum íbúðum ráði nú ríkjum.

„Þetta er í rauninni ekki lengur finnst mér borgin mín. Þetta er borg auðjöfra og ferðamanna. Bara að labba Laugaveginn, þá veit fólk alveg hvað er verið að tala um,“ segir Kolbrún enn fremur.

Kolbrún vill ráðast í verkefnið undir eins og útvega lóðir undir ódýrt húsnæði.

„Við viljum byggja bara alls staðar þar sem hægt er að byggja. Við viljum nota fjármagnið í borgarsjóð til þess að fara í þetta verkefni strax, vegna þess að þetta leysist ekki á einni nóttu. Þetta mun taka tíma, en þetta þarf að fara í forgang. Ef einhvern tímann einhver skilur hvað orðið forgangur þýðir þá er það núna. Fólkið í forgang,“ segir Kolbrún.

Getur unnið með hverjum sem er

Hún kveðst geta unnið með hvaða flokki sem er, ekki síður Samfylkingunni og öðrum flokkum í núverandi stjórn ef þeir vilji setja fólkið í fyrsta sæti.

„Það gengur ekki að halda svona áfram. Við getum ekki bara talað um þéttingu byggðar, græna borg og hjólreiðastíga. Á þessu lifum við ekki þó allt sé þetta gott og gilt,“ segir Kolbrún að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×