Innlent

Lögðu hald á umtalsvert magn fíkniefna og vopna

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Aðgerðirnar voru hluti af þremur húsleitum sem lögreglan fór í að fenginni heimild.
Aðgerðirnar voru hluti af þremur húsleitum sem lögreglan fór í að fenginni heimild. Vísir/Vilhelm
Lögreglan á Suðurnesjum hefur undanfarna daga haldlagt umtalsvert magn fíkniefna og vopna. Aðgerðirnar voru hluti af þremur húsleitum sem lögreglan fór í að fenginni heimild.

Í húsleit sem gerð var aðfaranótt sunnudags í íbúðarhúsnæði fundust kannabisefni. Þá hafði lögreglan afskipti af nokkrum aðilum sem voru að koma út úr húsnæðinu og reyndust þeir allir hafa neysluskammta af kannabisefni í fórum sínum. Í tilkynningu frá lögreglu segir að rökstuddur grunur sé um að sala fíkniefna hafi farið fram í húsnæðinu.

Í annarri húsleit í íbúðarhúsnæði fundust bæði kannabisefni og hvít efni víðsvegar um íbúðina. Einnig fundust þar haglabyssa, keðjukylfa, exi, hnífur og munir sem lögregla ætlar að hafi verið notaðir til að blanda og pakka fíkniefnum. Tveir aðilar í húsnæðinu voru með fíkniefni í fórum sínum. Annar þeirra viðurkenndi að eiga fíknefni sem fundust og sölu fíkniefna.

Í þriðju húsleitinni fundust kannabisefni og meint kókaín, sterar sem og óþekkt lyf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×