Innlent

Hægt að gera breytingar á kjörskrá fram á kjördag

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Djúpavík tilheyrir Árneshreppi, fámennasta sveitarfélagi landsins.
Djúpavík tilheyrir Árneshreppi, fámennasta sveitarfélagi landsins. visir/stefán
Þjóðskrá Íslands stefnir á að ljúka athugun sinni á lögheimilisskráningum fólks í Árneshrepp sem áttu sér stað um síðustu mánaðamót öðru hvoru megin við helgina, það er í lok þessarar viku eða byrjun þeirrar næstu. Þetta segir Ástríður Jóhannesdóttir, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs Þjóðskrár, í samtali við Vísi.

Kjörskráin verður lögð fram í dag, lögum samkvæmt, en hægt er að gera breytingar á henni fram á kjördag, til dæmis ef sveitarstjórnin í Árneshreppi telur niðurstöðu Þjóðskrár kalla á það, en sveitarstjórnir fara með ákvörðunarvald varðandi leiðréttingu á kjörskrám.

Spurð út í hvernig skoðun Þjóðskrár á málinu hafi verið háttað segir Ástríður að sú heimild sem stofnunin hefur til að kalla til lögreglu hafi verið notuð í þessu tilviki, en greint hefur verið frá því að lögreglan á Hólmavík hafi bankað upp á í nokkrum húsum í Árneshreppi til að sanna lögmæti lögheimilisflutninganna.

Þá segir Ástríður að þegar svona skoðun fari í gang sé kallað eftir upplýsingum frá viðkomandi einstaklingum og í einhverjum tilvikum er líka kallað eftir upplýsingum frá eigendum fasteigna. Í raun sé um að ræða almenna gagnaöflun og er viðkomandi einstaklingur hvattur til að leggja fram þau gögn sem hann telur að geti komið að gagni.

Umdeild Hvalárvirkjun nefnd sem möguleg ástæða lögheimilisskráninganna



Þjóðskrá hafði frumkvæði að því að skoða lögheimilisskráningarnar en Árneshreppur er fámennasta sveitarfélag landsins. Íbúum þar hefur fjölgað um 39 prósent í aðdraganda kosninganna og er fjölgunin umdeild þar sem grunur leikur á að um málamyndaskráningar sé að ræða vegna sveitarstjórnarkosninganna.

Aðalágreiningsmálefnið vegna kosninganna er Hvalárvirkjun og er til dæmis sveitarstjórnin í hreppnum klofin í afstöðu sinni til virkjunar. Þeir sem eru fylgjandi virkjuninni vilja meina að einhverjar af lögheimilisskráningunum séu runnar undan rifjum þeirra sem séu á móti virkjuninni til þess að hafa áhrif á hvort af henni verði eða ekki.



Þarf að leggja kjörskrána fram tíu dögum fyrir kjördag



Kjörskráin í Árneshreppi verður lögð fram á sveitarstjórnarfundi klukkan 16 í dag. Það mun því ekki liggja fyrir fyrir þann tíma hvort að lögheimilisskráningarnar sem málið snýst um standi eða verði látnar niður falla.

Samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna má gera leiðréttingar á kjörskrá fram á kjördag. Sveitarstjórnin tekur athugasemdir við kjörskrá til meðferðar komi þær fram og gerir þá leiðréttingu á skránni ef þurfa þykir, en tilgangurinn með því að leggja kjörskrár fram eigi síðar en tíu dögum fyrir kjördag er einmitt sá að gefa almenningi og öðrum kost á að gera athugasemdir.

Niðurstaða Þjóðskrár um lögheimilisskráningarnar í Árneshreppi getur því haft áhrif á kjörskrána þó að búið sé að leggja hana fram.


Tengdar fréttir

Birtir lista yfir þá sem fluttu lögheimili sitt í Árneshrepp

Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi alþingismaður og Vestfirðingur, birtir á heimasíðu sinni í kvöld lista yfir fólk sem hann segir að hafi flutt lögheimili sitt í Árneshrepp á Ströndum dagana fyrir 5. maí síðastliðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×