Íslenski boltinn

ÍBV hafði betur gegn KR

Dagur Lárusson skrifar
KR tapaði einnig 2-0 gegn ÍBV í síðasta leik liðanna.
KR tapaði einnig 2-0 gegn ÍBV í síðasta leik liðanna. vísir/Ernir
Cloé Lacasse og Clara Sigurðardóttir tryggðu ÍBV stigin þrjú gegn KR í Pepsi deild kvenna í dag en með sigrinum komst ÍBV í sex stig.

 

Það var fátt um fína drætti í fyrri hálfleiknum og náði hvorugt liðið að skapa sér nægilega góð marktækifæri.

 

Það var ekki fyrr en í seinni hálfleiknum þegar marktækifærin fóru að láta sjá sig og eitt slíkt kom á 67. mínútu. Þá vann Clara Sigurðardóttir skallaeinvígi í teig KR og barst boltinn til Cloé Lacasse sem skoraði og kom sínu liði yfir.

 

Á 80. mínútu var síðan komið að Clöru að skora en þá fékk hún boltann á fjær eftir frábæra fyrirgjöf Kristínar Erlu og setti boltann í markið og innsiglaði sigur ÍBV.

 

ÍBV er nú komið upp að hlið Vals í þriðja sæti deildarinnar á meðan KR er í sjötta sæti.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×