Skoðun

Nú er lag Lilja!

Sumarrós Sigurðardóttir skrifar
Frú menntamálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir.

Mig langar til að byrja á að segja þér, hve vel mér leist á þig þegar þú tókst við embætti menntamálaráðherra. Þú varst jákvæð, hugsaðir stórt varðandi þinn málaflokk og varst stóryrt um allt sem þú vildir gera málaflokknum í hag.  Þér hefur á þeim tímapunkti, eflaust brugðið mjög við lestur síðustu Pisa könnunar um hnignandi færni íslenskra ungmenna í lesskilningi og öðru  sem einkennir góðan menntunarstaðal þjóðar.  Ég heyrði þig margoft segja í viðtölum sem tekin voru við þig, að velferð hverrar þjóðar byggðist á góðu menntakerfi og því þyrfti að stórbæta kjör kennara.

Eitthvað virðist mér nú innistaða orða þinna og yfirlýsinga hafa rýrnað  miðað við það sem gengur á í kjaraviðræðum við kennara. Grunnskólakennarar eru nýbúnir að fella nýgerðan kjarasamning og útlit er fyrir að nýgerður kjarasamningur við framhaldsskólakennara verði felldur. Sterk og mikil undiralda er alla vega í þá átt.

Mig langar því að spyrja þig  hvort þú hafir talað fyrir bættum kjörum kennara við þitt samstarfslið í ríkisstjórn Íslands og bent þeim á sannleiksgildi orða þinna um að menntun sé hornsteinn velmegunarsamfélaga?! Ef svo er, hver er þá afstaða ríkisstjórnar Íslands til þessarra mála? Gera samráðherrar þínir í ríkisstjórn sér grein fyrir að þeir væru ekki þar sem þeir eru í dag nema fyrir tilstilli kennara á mörgum stigum skólagöngunnar?  

Frú menntamálaráðherarra. Er það einlæg sannfæring þín, að nauðsyn sé á að bæta kjör kennara svo um munar eða var þetta bara eitthvað sem þér þótti við hæfi að segja þegar þú settist í stól menntamálaráðherra?  Finnst þér að eigi að meta menntun til launa? Ég spyr þessarar seinni  spurningar, vegna þess að ekki virðist heldur vera vilji hjá ríkisstjórn Íslands að meta ljósmæður að verðleikum eftir 6 ára nám.

Það virðist sem hæstvirtur fjármálaráðherra sé ansi mikið á bremsunni varðandi launahækkanir hins almenna launþega, á meðan Kjararáð skammtar efsta lagi samfélagsins, þar á meðal ráðherrum, alþingismönnum og æðstu stjórnendum ríkisfyrirtækja, ansi vel úr hnefa, jafnvel ofurlaun ! Þetta getur hinn almenni launþegi ekki liðið lengur, honum er hreinlega ögrað með þessum aðgerðum! Hinn almenni launþegi veit nefnilega, hverjir skipa í Kjararáð og marka línur varðandi ákvarðanir sem þar eru teknar. Sú mynd blasir skýr við öllum hugsandi mönnum!

Er það virkilega svo, að fagráðherrar séu bara strengjabrúður fjármálaráðherra og að hann stjórni þeim með ægivaldi þannig að faglegur málflutningur þeirra þurfi að láta í minni pokann fyrir ofríki hans?

Er sagan um traust á íslenskum stjórnmálamönnum enn einu sinni að endurtaka sig þegar kjósendur horfa á lýðræðislega kosna stjórnmálamenn  ganga á bak yfirlýsinga sinna og loforða? Ég vona að svo sé ekki og skora því  á þig  sem varst með svo fögur fyrirheit þínum málaflokki í hag, í upphafi ferils þíns sem menntamálaráðherra, að standa við stóru orðin og endurreisa íslenskt menntakerfi úr öskustónni með því m.a. að beita þér til að á kjörum kennara verði sú nauðsynlega breyting  sem til þarf!

Með góðri kveðju, Sumarrós Sigurðardóttir, framhaldsskólakennari.




Skoðun

Skoðun

Al­einn í heiminum?

Lukka Sigurðardóttir,Katrín Harðardóttir ,Margrét Kristín Blöndal skrifar

Sjá meira


×