Skoðun

Þegar brestur og brotnar - verður úr að bæta

Edith Alvarsdóttir skrifar
Borgin okkar - Reykjavík býður fram kraftmikla reynslu, áræðni og þor í komandi borgarstjórnarkosningum, vegna þess sem Reykvíkingar finna, þegar á þeim er brotið: Í hremmingum umferðar í biðröð, þar sem allt hefur farið á verri veg.

Á meðan hefur nánast ekkert verið gert í vegaframkvæmdum með tilheyrandi óþægindum og kostnaði fyrir borgarbúa. Óþægindi vegna aukinnar mengunar sem kemur samfara bílaumferð og óhreinum götum en þær eru ekki þrifnar enda borgin vægt til orða tekið skítug. Umferðateppum sem skapast m.a. vegna þrengingu gatna, jafnvel hættu vegna holóttra gatna. Þá eru bílar meira og minna í lausagangi með tilheyrandi mengun og svifryks sem kemur þegar bílar eru að taka af stað og stöðva í sífellu.

Dagur B. borgarstjóri sagði í viðtali í febrúar að samgöngumál verði ekki leyst nema með því að breyta ferðamáta fólks. Á að þvinga fólk til að leggja bílum sínum? „Til hvers höfum við samgöngukerfi? „Það er til að koma fólki og vörum á milli staða. Það er ekki til þess að koma þessum járnhylkjum sem heita bílar á milli staða,“ voru orð Hjálmar Sveinsson, formaður umhverfis og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar.

Á fimm ára tímabili var aukafjárveiting frá ríkinu upp á milljarð á ári til að auka farþega strætó. Farþegarnir voru 4% og átti aukningin að verða 2% eða upp í 6%, engin aukning hefur hins vegar átt sér stað.

Í ljósi þessa er aðgerðarleysi meirihlutans síðustu 2 kjörtímabil í að vinna að forgangsakreinum Strætó undarleg. Allt kapp virðist vera lagt í borgarlínuna án þess að nokkur viti hvað borgarlínan er eða borgarlínu bruðlið ætti ef til vill frekar að segja. Það vita flestir að kostnaðaráætlanir ríkis og sveitarfélaga standast sjaldan ef nokkru sinni. Áætlaður kostnaður við borgarlínuna er 70 milljarðar en verður það reyndin? Hverjar hafa verið framkvæmdirnar eða viðgerðir á götum borgarinnar? Ljóst er að eitthvað verður að gera í umferðarmálunum nú þegar.

Tillaga Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, oddvita Borgin okkar - Reykjavík, um samtal milli Reykjavíkurborgar, heilbrigðisráðherra, forstjóra Landsspítala og stéttarfélaga heilbrigðisstarfsfólks, um að kanna hvort breyta megi vaktafyrirkomulagi á Landspítalanum til að stytta ferðatíma starfsfólks til og frá vinnu. Breytt vaktafyrirkomulag getur jafnvel stytt ferðatíma annarra íbúa á höfuðborgarsvæðinu á háannatíma og aukið lífsgæði.

Höfundur skipar 2. sætið á framboðslista Borgin okkar Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.




Skoðun

Skoðun

Al­einn í heiminum?

Lukka Sigurðardóttir,Katrín Harðardóttir ,Margrét Kristín Blöndal skrifar

Sjá meira


×