Enski boltinn

HM og úrslitaleikur Meistaradeildarinnar úr sögunni hjá Gomez

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gomez í leik með Liverpool.
Gomez í leik með Liverpool. vísir/getty
Joe Gomez, varnarmaður Liverpool, þarf að bíta í það súra epli að spila ekki meiri fótbolta á þessu tímabili.

Þessi tvítugi strákur meiddist í vináttulandsleik með Englandi í síðasta mánuði. Hann hefur nú þurft að gangast undir aðgerð vegna meiðslanna.

„Það er ömurlegt að staðfesta að ég mun ekki spila meira á þessari leiktíð vegna meiðslanna. Síðustu vikur hafa verið erfiðar en nú mun ég einbeita mér að því að verða klár er undirbúningstímabilið hefst,“ sagði Gomez.

Gomez er búinn að spila 23 leiki fyrir Liverpool í vetur. Hann spilaði sinn fyrsta landsleik í nóvember og hefur spilað tvo landsleiki síðan þá. Fastlega var búist við því að hann færi á HM.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×