Leicester fór illa með tíu leikmenn Arsenal

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Cech mátti hirða knöttinn þrisvar úr neti sínu í kvöld
Cech mátti hirða knöttinn þrisvar úr neti sínu í kvöld vísir/getty
Leicester City vann öruggan sigur á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þegar liðin áttust við á King Power leikvangnum.

Kelechi Iheanacho kom heimamönnum yfir á 14.mínútu og í kjölfarið Konstantinos Mavropanos að líta rauða spjaldið og léku Arsenal því stærstan hluta leiksins manni færri. 

Pierre Emerick Aubameyang jafnaði metin engu að síður í upphafi síðari hálfleiks en heimamenn reyndust sterkari á lokakaflanum og höfðu að lokum 3-1 sigur eftir mörk frá Jamie Vardy af vítapunktinum og Riyad Mahrez í uppbótartíma.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira