Huddersfield verður áfram í ensku úrvalsdeildinni

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Huddersfield fellur ekki
Huddersfield fellur ekki vísir/getty
Nýliðar Huddersfield Town héldu til Lundúna í kvöld með það fyrir augum að tryggja sæti sitt í ensku úrvalsdeildinni en til þess þurfti liðið eitt stig gegn Chelsea sem á enn veika von um Meistaradeildarsæti.

Fyrri hálfleikur var markalaus en Laurent Depoitre kom gestunum yfir strax í upphafi síðari hálfleiks. Marcos Alonso jafnaði metin fyrir heimamenn eftir rúmlega klukkutíma leik.

Chelsea sótti án afláts síðustu mínúturnar en þrátt fyrir sex mínútna uppbótartíma tókst Huddersfield að halda í jafnteflið. Lokatölur 1-1.

Huddersfield Town verður því á meðal þátttakenda í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Vonir Chelsea um Meistaradeildarsæti eru hins vegar orðnar að nánast engu en liðið þarf að vinna leik sinn  í lokaumferðinni og treysta á að Liverpool tapi fyrir Brigton. Langsótt.





Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira