Yaya Toure kvaddur með stæl

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Yaya Toure kveður Man City
Yaya Toure kveður Man City vísir/getty
Það var lítið undir á Etihad leikvangnum í Manchester í kvöld þegar nýkrýndir Englandsmeistarar Man City fengu nýliða Brighton í heimsókn en síðarnefnda liðið var búið að tryggja veru sína meðal þeirra bestu fyrir leik kvöldsins.

Brasilíski bakvörðurinn Danilo kom Man City yfir snemma leiks en Argentínumaðurinn Leonardo Ulloa jafnaði metin fyrir Brighton. Portúgalinn Bernardo Silva sá til þess að City færi með forystu í leikhlé.

Annar Brasilíumaður, Fernandinho, gulltryggði svo enn einn sigur Man City með marki á 72.mínútu og þægilegur sigur meistaranna staðreynd.

Leikurinn var settur upp sem eins konar kveðjuleikur fyrir Yaya Toure en Fílbeinsstrendingurinn stóri og stæðilegi bar fyrirliðabandið og fékk heiðursskiptingu á 86.mínútu en hann mun yfirgefa Man City í sumar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira