Tottenham tryggði sér Meistaradeildarsæti 9. maí 2018 20:45 Harry Kane var á skotskónum í kvöld. vísir/getty Tottenham tryggði sér Meistaradeildarsæti með 1-0 sigri á Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Markalaust var í hálfleik en eina mark leiksins kom á 50. mínútu er Harry Kane skoraði eftir undirbúning Heung-Min Son. Sigurinn var afar mikilvægur fyrir Tottenham sem tryggði sér Meistaradeildarsæti með sigrinum en liðið er nú í þriðja sætinu með 74 stig. Liverpool er í fjórða sætinu með 72 stig og Chelsea er í fimmta sætinu með 70 stig. Chelsea og Liverpool berjast því um síðasta sætið í Meistaradeildinni á næsta tímabili en lokaumferðin verður spiluð á sunnudag. Newcastle signer lygnan sjó en liðið er í tíunda sætinu með 41 stig. Liðið gæti þó endaði í þrettánda sætinu fari illa í lokaumferðinni. Enski boltinn