Innlent

Taka fyrir að Björt framtíð sé að líða undir lok

Erla Björg Gunnarsdóttir og Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifa
Björt framtíð býður hvergi fram ein undir eigin merkjum í komandi sveitastjórnarkosningum en bæjarfulltrúar sameinast öðrum flokkum víða um land.  Formaður Bjartrar framtíðar segir flokkinn þó enn starfandi og að möguleiki á endurkomu sé fyrir hendi.

Eins og kunnugt er mun Björt framtíð ekki bjóða fram lista í Reykjavík. Björt framtíð mun eingöngu bjóða fram í Kópavogi í næstu sveitarstjórnarkosningum og það sameiginlegan lista með Viðreisn. Sama hugmynd var uppi á teningnum í Hafnarfirði en að lokum ákvað Björt framtíð að draga sig úr slíku samstarfi.

Ýmsir bæjarfulltrúar úr Bjartri framtíð munu þó gefa kost á sér undir merkjum annarra flokka. Til að mynda Garðabæjarlistanum, Frjálsu afli í Reykjanesbæ, lista óháðra í Hveragerði og L-listanum á Akureyri. Flokkurinn mun ekki bjóða fram á Akranesi þar sem einn bæjarfulltrúi hefur verið í meirihluta með Sjálfstæðisflokknum, en gefur ekki kost á sér á ný.

Vilborg Þór­unn Guðbjarts­dótt­ir bæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar á Akranesisegir ekki hafa verið grundvöll fyrir framboði enda margir úr hópnum fluttir úr bænum.

Er flokkurinn hættur að starfa hér á Akranesi?

„Það er ekki búið að gefa út dánarvottorð ennþá og flokkurinn verður til áfram. Vaknar vonandi úr dvala.“

Hefurðu áhyggjur af stöðu BF á landsvísu?

„Já, svolítið. Verð að játa það. Það er samt kjarni sem er ennþá með eldmóðinn og hugsjónirnar sem lagt var með upp í upphafi og ég hef fulla trú á því að þau haldi áfram en það er spurning hvort Björt framtíð sem stjórnmálaafl komi til með að starfa eða hvort þetta fólk komi sínum verkum á framfæri á öðrum vettvangi.“

Í samtali við fréttastofu tók Björt Ólafsdóttir, formaður Bjartrar framtíðar, alveg fyrir að flokkurinn væri að líða undir lok. Hún viðurkenndi að flokkurinn hafi sannarlega verið sterkari, en að enn sé starfandi stjórn og framboð í framtíðinni séu ekki útilokuð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×