Hefur verið hjá Manchester United síðan hann var sjö ára en gæti farið í sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. apríl 2018 09:30 Marcus Rashford. Vísir/Getty
Framtíð Marcus Rashford hjá Manchester United er í uppnámi samkvæmt frétt í enska blaðinu Daily Mirror í morgun. Rashford hefur aðeins verið í byrjunarliðinu í fimm af síðustu sextán leikjum Manchester United og hann fékk ekki að byrja Manchester-slagnum við City um helgina. Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, setti Rashford reyndar inná síðustu átta mínútur leiksins en það breytti því ekki að enski landsliðsframherjinn er orðinn pirraður á stöðu sinni innan liðsins. Hinn tvítugi Rashford hefur tekið þátt í 43 leikjum á tímabilinu en hefur aðeins verið 22 sinnum í byrjunarliðinu. Marcus Rashford skoraði tvö mörk í 2-1 sigri á Liverpool þegar hann var síðast í byrjunarliðinu í ensku úrvalsdeildinni en spilað aðeins í 22 mínútur í tveimur næstu deildarleikkjum á móti Swansea og Manchester City.The two things Mourinho did to upset Rashford amid claims England star wants to leave https://t.co/vGKS7V7DiSpic.twitter.com/zQtjoWEcPw — Mirror Football (@MirrorFootball) April 10, 2018 Koma Alexis Sanchez til félagsins hefur ekki hjálpað til og þó að Marcus Rashford hafi ekki kvartað opinberlega um lítinn spilatíma þá hefur blaðamaður Mirror heimildir fyrir því að hann sé mjög ósáttur. Síðasti leikur Marcus Rashford í byrjunarliðinu var í tapleiknum á móti sevilla í Meistaradeildinni en síðan hefur leikmaðurinn byrjað á bekknum í þremur leikjum í röð. Manchester United hefur unnið þá alla. Marcus Rashford hefur verið hjá Manchester United síðan að hann var sjö ára gamall og það er hans draumur að spila áfram á Old Trafford. Lykilatriði er þó að hann vill spila fótbolta og það hefur ekki verið nóg um það í vetur. Þetta er þriðja tímabil Marcus Rashford með aðalliði Manchester United. Hann skoraði 8 mörk í 18 leikjum fyrsta tímabilið, 11 mörk í 53 leikjum í fyrra og er kominn með 12 mörk í 44 leikjum á þessu tímabili.
Enski boltinn Mest lesið Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Körfubolti McIlroy sækir um skilnað nokkrum dögum fyrir PGA-meistaramótið Golf Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Íslenski boltinn United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Enski boltinn Skaut á Taylor Swift og sagði konum að halda sig í eldhúsinu Sport Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Íslenski boltinn Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur Körfubolti Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna Enski boltinn Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Enski boltinn Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Körfubolti Fleiri fréttir Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Varamarkmaðurinn og Håland hetjurnar: Man City á toppinn fyrir lokaumferðina Emirates verður aðalheimavöllur Arsenal á næstu leiktíð Guardiola: Arsenal verður meistari ef við vinnum ekki Tottenham Var með 0,99 í xG en skoraði samt ekki Varane kveður United eftir tímabilið Fernandes íhugar að stökkva frá borði Hrósaði karakter leikmanna eftir að liðið henti frá sér unnum leik Liverpool henti frá sér sigrinum í síðasta útileik Klopp Kröfðu Bayern um 100 milljónir fyrir þjálfarann Sú markahæsta í sögu ensku deildarinnar yfirgefur Arsenal og fer væntanlega til City Foss á Old Trafford leikvanginum í gær Saka Casemiro um leti: „Hreyfðu fæturna á þér“ Líkir Havertz við Liverpool-hetju Segir að staðan hjá United sé miklu verri en hún var hjá Moyes Havertz: „Verð mesti stuðningsmaður Tottenham í sögunni“ Rooney sakar meidda leikmenn United um að vilja ekki spila „Höfum ekki haft neitt svigrúm til að gera mistök“ Fyrsti stóri titill United-kvenna Enn ekkert skorað í umspilinu Trossard skaut Arsenal á toppinn Leeds í fínum málum eftir fyrri leikinn Arteta hælir Ten Hag og vonast til að hann haldi áfram Örlög Luton ráðin og allir nýliðarnir falla Þriðji sigurinn í röð og daumurinn um Evrópusæti lifir Jóhann fékk ekki að spila þegar Burnley féll Sjá meira