Lífið

Óli Þórðar setti allt á hliðina: "Óverdósað af rítalíni og fengið heiftarlega túrverki“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ólafur varð sex sinnum Íslandsmeistari með ÍA sem leikmaður og einu sinni sem spilandi þjálfari (2001).
Ólafur varð sex sinnum Íslandsmeistari með ÍA sem leikmaður og einu sinni sem spilandi þjálfari (2001).
Skagamaðurinn Ólafur Þórðarson vakti heldur betur mikla athygli í íslensku samfélagi í gær. Í viðtali við Gunnlaug Jónsson í þættinum Návígi á fótbolti.net talaði hann til að mynda um að verið væri að kellingavæða allt samfélagið.

„Það er verið að kellingavæða allt saman. Það má ekki segja neitt. Femínisminn er orðinn allsráðandi. Ég hef ekkert á móti femínistum en karlmenn eru bara karlmenn. Út á vellinum eru þetta bara dýrin í skóginum,“ sagði Ólafur orðrétt.

Ólafur Þórðarson er margfaldur Íslandsmeistari í knattspyrnu og gerði það gott á sínum ferli sem leikmaður ÍA, atvinnumaður og landsliðsmaður. Hann náði fínum árangri sem þjálfari í efstu deild karla í knattspyrnu.

Fyrir sjö árum fór íþróttafréttamaðurinn Guðjón Guðmundsson með Óla Þórðar í vinnuna en hann starfar sem vörubílstjóri. Hér að neðan má sjá það innslag. 

Hann hefur jafnframt áhyggjur af ungdómnum á Íslandi.

„Það er verið að rítalíndópa börn frá unga aldri. Væri ég barn í dag þá væri ég á tvöföldum Rítalín-skammti. Við erum að drepa karakterinn í þessum krökkum í stað þess að koma þeim í útrás. Svo þau geti notað orkuna sem í þeim býr.“

Viðtalið við Óla vakti gríðarlega athygli á samfélagsmiðlum í gær og hafði fólk greinilega sterkar skoðanir á málinu.

Sjónvarpsmaðurinn Helgi Seljan er ekki hrifinn af viðtalinu við Óla og lét eftirfarandi orð falla á Twitter: 

„Æ greyið steinþegiðu. Það að keyra vörubíl í Kraftgalla gerir þig ekki að einhverjum old wise man. Því síður að þú hafir geta reimað á þig takkaskó.“

Kennarinn Haukur Bragason sem kallar sig Séntilmennið á Twitter var alls ekki hrifinn af orðum Óla Þórðar og gengur svo langt að kalla hann vitleysing:

„Ef við tökum þessa dýrapælingu lengra þá hefði Óli Þórðar pottþétt verið rosa sterkt rándýr og fljótur að hlaupa en hann hefði líka drepið sig fyrir 30 árum við að reyna að veiða kaktus. Þvílíkur vitleysingur.“

Nichole Leigh Mosty, fyrrverandi þingmaður Bjartrar framtíðar, segist þekkja nokkra hellisbúa eins og Óla.

„Vildi geta sagt að ég er orðlaus. Enn sannleikurinn er ég þekkja þó nokkra CAVEMENN sem fékk ekki skilaboð um að árið er 2018! Óli Þórðar: Það er verið að kellingavæða allt saman.“

Knattspyrnukonan Rakel Logadóttir, skilur einfaldlega ekki orðræðu Óla Þórðar:

„Það er verið að kerlingavæða þetta allt saman. Það má enginn stíga út fyrir línuna, það má ekki segja neitt Óli Þórðar". Er ekki alveg að skilja þessa setningu.“

Tónlistarmaðurinn Hannes Friðbjarnarson segir að Óli þurfi að stíga inn í nútímann:

„Finnst eins og Óli Þórðar þurfi að stíga inn í nútímann. Skreppa svo til sálfræðings og losa um alla þessa reiði.“

Hörður Snævar Jónsson, ritstjóri fótboltasíðunnar 433.is er sjálfur af gamla skólanum:

„Stundum held ég að Óli Þórðar sé faðir minn, erum báðir af gamla skólanum og ef það er eitthvað sem við elskum er það að bretta upp ermar og vinna. Ekki fyrir alla en við elskum það.“

Knattspyrnuþjálfarinn Milos Milojevic segist þekkja Óla vel:

„Ok...get sagt að ég þekki Óla Þ nokuð vel. Ljúfasti og einn af bestum mönnum sem ég hef kynnst á Íslandi og á honum mikið að þakka. Hann segir hlutir eins og eru en menn(við) túlkum þeim eins og við viljum og þá eru hlutanir að fara í vitlausu.“

 

Fyrrverandi Alþingismaðurinn Páll Valur Björnsson telur líklegt að Óli hafi sjálfur tekið of mikið rítalín.

„Mér dettur helst í huga að Óli kallinn hafa óverdósað af Rítalíni og fengið heiftarlega túrverki í kjölfarið. Íslenskt íþróttafólk hefur á síðustu misserum unnið stórkostleg afrek og nægir að nefna handknattleiks, knattspyrnu (karlar og konur) körfubolta og fimleika (konur) landsliðin okkar. Eitthvað sem Óli upplifði aldrei sem landsliðsmaður.“

Neðst í fréttinni má sjá alla umræðu á Twitter þar sem nafnið Óli Þórðar kemur við sögu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×