Lífið

John Krasinski þurfti að ofsækja Emily Blunt til að fá stefnumót

Krasinski og Blunt fóru á kostum hjá Norton.
Krasinski og Blunt fóru á kostum hjá Norton.
John Krasinski og Emily Blunt fara með aðalhlutverkin í hrollvekjunni A Quiet Place sem hefur vakið verðskuldaða athygli og trónir nú á toppi aðsóknarlista Bandaríkjanna.

Myndin segir frá fjölskyldu sem býr á afviknum stað í algjörri þögn. Þær aðstæður eru tilkomnar vegna skrímsla sem ráðast á mannfólk við hvert einasta hljóð. Til að halda lífi þarf fjölskyldan því eftir bestu getu að lifa eins hljóðlátu lífi og hún getur.

John Krasinski og Emily Blunt gift og mættu saman í spjallþátt Graham Norton í Bretlandi á dögunum. Þar kom í ljós að Krasinski hefur alltaf verið sjúklega mikill aðdáandi Blunt og segist hann hafa séð The Devil Wears Prada 72 sinnum.

Í þættinum kom einnig í ljós að hann hafi hreinlega ofsótt leikkonuna á sínum tíma til að fá stefnumót við hana.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×