Lífið

Arcade Fire með tónleika á Íslandi í sumar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Arcade Fire hefur unnið til margra verðlauna síðustu ár.
Arcade Fire hefur unnið til margra verðlauna síðustu ár. vísir/getty
Kanadíska sveitin Arcade Fire mun halda tónleika í Laugardalshöllinni þann 21.ágúst. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HR. Örlygi sem flytur sveitina inn til landsins. 

Arcade Fire var stofnuð í blábyrjun aldarinnar í Montreal, Kanada af bekkjarbræðrunum Win Butler, söngvara sveitarinnar, og Josh Deu. Sveitin er ekki síst þekkt sem eins konar fjölskylduband þar sem Régine Chassagne, eiginkona Butler, og yngri bróðir hans, William Butler, eru einnig á meðal meðlima.

Arcade Fire var stofnuð árið 2001 og eru hún skipuð þeim og vakti fyrst athygli árið 2004 þegar platan Funeral kom út og sló platan rækilega í gegn en þar má finna lög á borð við Rebellion og Wake Up.

„Gagnrýnendur og tónlistarskríbentar vilja margir meina að Arcade Fire sé besta hljómsveit í verða síðustu tónleikarnir á Everything Now tónleikaferðalaginu þeirra og þau munu nota tækifærið og ferðast um Ísland í kjölfarið,” segir Þorsteinn Stephensen, tónleikahaldari, í tilkynningunni og bætir við;

„Þetta verður einstök upplifun. Ekki nóg með það að þetta sé mögnuð tónleikasveit þá eiga þau bara svo mörg góð lög og höfða til svo breiðs hóps. Ég ætla að leyfa mér að spá að þetta verði einhverjir þeir bestu tónleikar sem nokkurn tíman hafa verið haldnir á Íslandi.”

Miðasala hefst þriðjudaginn 17. apríl á Tix.is. Hér að neðan má hlusta á tvö vel valin lög með sveitinni:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×