Salah með 30. markið í öruggum sigri Liverpool

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ótrúlegur.
Ótrúlegur. vísir/getty
Liverpool lenti í engum vandræðum með Bournemouth á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Eftir að hafa slegið út Man. City úr Meistaradeildinni í vikunni unnu Liverpool 3-0 sigur á Bournemouth á Anfield í dag.

Veislan hófst strax á sjöundu mínútu er Sadio Mane kom Liverpool yfir en biðin var þó nokkuð löng eftir næsta marki. Liverpool hafði mikla yfirburði.

Magnaður Mohamed Salah skoraði sitt 30. mark í deildinni á 69. mínútu eftir undirbúning Trent Alexander-Arnold og í uppbótartíma skoraði svo Roberto Firmino. 3-0 sigur Liverpool.

Liverpool er í þriðja sætinu, stigi á eftir Man. Utd, en Bournemouth siglir lygnan sjó; eru í ellefta sætinu með 38 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira