Lífið

Risi úr teknóheiminum spilar inn sumarið

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Matrixxman sendi frá sér plötuna Homesick árið 2015 og rauk upp á toppinn í teknóheiminum.
Matrixxman sendi frá sér plötuna Homesick árið 2015 og rauk upp á toppinn í teknóheiminum.
Matrixxman er teknó-pródúser og plötusnúður. Hann er staddur hér á landi um þessar mundir að brasa smá tónlist með Adda Exos, einni aðalsprautu teknótónlistar á Íslandi, og spilar á Húrra í kvöld.

„Þetta er stórmerkilegur maður. Hann er eiginlega einn aðalteknó-listamaðurinn í dag. Hann gaf út plötuna Homesick fyrir einum þremur árum og skaust í kjölfarið bara upp á stjörnuhimininn í teknóheiminum og spilar hverja helgi á bestu stöðunum – hann spilar til dæmis á Berghain í hverjum mánuði. Svo var hann uppgötvaður af Depeche Mode. Matrixxman sá sem sagt um að prógrammera synthana á síðustu plötu Depeche Mode, Spirit.­“ 

„Hann stakk upp á því að við myndum gera plötu saman, og ég sagði bara „já“ og hann mætti til Íslands – auðvitað ætlum við að henda í gigg í leiðinni og gera eitthvað skemmtilegt í kvöld,“ segir Arnviður Snorrason, eða Addi Exos eins og flestir þekkja hann, einn aðalmaðurinn í teknósenu okkar Íslendinga.

Hann ætlar að henda í heljarinnar teknókvöld á Húrra í kvöld bæði vegna þess hinn funheiti Matrixxman er í bænum að vinna með honum og einnig vegna þess að X/OZ, plötu­útgáfa Adda, er að gefa út tvær glænýjar plötur á næstunni.

Yagya gefur út EP-plötuna Fifth Force sem kemur út 30. apríl. Þetta er hans fyrsta sóló EP-plata og á henni verða fimm lög.

Waage gaf út plötuna W við góðar viðtökur í fyrra og ætlar núna í maí að fylgja henni eftir undir merkjum X/OZ.

X/OZ er frekar nýtt batterí, ekki satt?

„Jú, ég byrjaði á þessu síðasta vor en núna á þessu ári hafa verið mánaðarlegar útgáfur og munu verða áfram.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×