Innlent

Íslenskir togarar komust í gegnum hættulegt sund við Singapúr

Gissur Sigurðsson skrifar
Umrætt sund heitir Malakkasund og sést hér.
Umrætt sund heitir Malakkasund og sést hér. vísir/getty
Togararnir Páll Pálsson ÍS og Breki VE, sem smíðaðir voru í Kína og eru nú á heimleið, eru komnir í gegnum sundið við Singapúr, og vel inn á Indlandshafið, en sjórán eru tíð á sundinu.

Samkvæmt upplýsingum frá Vaktstöð siglinga gengur heimsiglingin vel og samkvæmt áætlun, en um eða upp úr næstu helgi fara skipin um annað hættusvæði undan ströndum Sómalíu, þar sem sjóræningjar láta til sín taka.

Líklegt er að togararnir muni þá slást í hóp annarra skipa og að hópurinn njóti verndar herskipa. Síðan verður siglt um Súesskurðinn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×