Enski boltinn

Messan: Held að Conte vonist eftir því að fá sparkið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hvar lendir Conte næst?
Hvar lendir Conte næst? vísir/getty
Staðan stjóra Chelsea, Antonio Conte, var rædd í Messunni og á þeim bænum sjá menn ekki fyrir sér að Ítalinn verði áfram í brúnni á Brúnni.

„Ég held að hann vonist eftir því að fá sparkið. Það er búið að vera leikrit í gangi í allan vetur þar sem hann hefur á alls konar hátt kvartað yfir því hvað sé erfitt að vera stjóri hjá Chelsea,“ segir Ólafur Kristjánsson.

„Hann lætur Costa fara. Matic er seldur og Luiz spilar ekki. Hann er stúrinn á blaðamannafundum sem og út í Abramovich. Það hefur enginn komist upp með að vera stúrinn út í hann án afleiðinga.“

Sjá má umræðuna hér að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×