Íslenski boltinn

Sjáðu Blika kynna nýjan kynþokkfullan leikmann í skemmtilegu myndbandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Oliver Sigurjónsson í sundlauginni.
Oliver Sigurjónsson í sundlauginni. Youtube/BlikarTV
BlikarTV er að koma skemmtilega inn á þessu undirbúningstímabili og það er ljóst að Blikar ætla að leika sér aðeins í sjónvarpinu sínu í sumar sem er hið besta mál.

Blikar hafa nú fengið Oliver Sigurjónsson að láni frá Bodö/Glimt í Noregi og kynntu hann með dramatísku myndbandi á BlikarTV í dag.

Oliver Sigurjónsson fór frá Breiðabliki til Bodö/Glimt í lok júlí í fyrra en hefur verið óheppin með meiðsli eins og oft áður á ferlinum.

Nú fær hann tækifæri til að spila sig í gang með sínu gamla liði í Pepsi-deildinni í sumar.

Félagar hans fyrrverandi og verðandi tóku vel á móti sínum manni en Breiðablik er nú í æfingaferð í Monte Castillo á Spáni.

Móttökur liðsfélagana voru vissulega flottar en það fór fyrst að hitna í kolunum þegar mennirnir á BlikarTV fóru að mynda Oliver í sundlauginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×