Lífið

Segir 12 tóna vera meira en venjulega plötubúð

Sveinn Arnarsson skrifar
Lárus Jóhannesson og Jóhannes Ágústsson reka plötubúðina 12 tóna á Skólavörðustíg. Lárus segir þennan tíma hafa verið afar viðburðaríkan og tímarnir hafa breyst verulega síðan rekstur verslunarinnar hófst fyrir tveimur áratugum.
Lárus Jóhannesson og Jóhannes Ágústsson reka plötubúðina 12 tóna á Skólavörðustíg. Lárus segir þennan tíma hafa verið afar viðburðaríkan og tímarnir hafa breyst verulega síðan rekstur verslunarinnar hófst fyrir tveimur áratugum. Vísir/ANTOn
Hljómplötuverslunin 12 tónar á Skólavörðustíg fagnar um þessar mundir 20 ára afmæli sínu. Á þessum tveimur áratugum hefur orðið gríðarleg breyting í dreifingu tónlistar og má með sanni segja að það sé ákveðið stórvirki að halda úti hljómplötuverslun svo lengi á þessum tíma.

Í stafni verslunarinnar standa þeir Lárus Jóhannesson og Jóhannes Ágústsson. Lárus segir þennan tíma hafa verið afar viðburðaríkan og engan bilbug er að finna á þeim félögum.

„Það er alveg rétt að 12 tónar er annað og meira en bara bara hljómplötuverslun. Þetta fyrirbæri er orðið nokkuð þekkt,“ segir Lárus. „Við höfum reynt eftir fremsta megni að vera með gott úrval af góðri tónlist og reynt að brjóta múra milli tónlistarstefna sem hefur að okkar mati gefist vel.“

En Lárus bendir lílka á að fólk hafi gagngert gert sér ferð til Íslands með það að markmiði að koma í verslunina. „Fyrir mörgum árum kom til okkar kona frá Japan sem hafði dreymt um að koma í 12 tóna, setjast niður með kaffibolla og hlusta á íslenska tónlist. Svo þegar hún loksins kom þá brotnaði hún niður og fór að gráta. Þá áttuðum við okkur á hvað þetta var stór stund í lífi hennar,“ segir Lárus.

Verslunin er því að einhverju leyti fjölsóttur ferðamannastaður í Reykjavík. „Það var fyrir tveimur árum að við lokuðum versluninni í hálftíma vegna brúðkaups,“ segir Lárus frá. „Það orsakaðist þannig að við fengum bréf með hálfs árs fyrirvara frá pari í Ástralíu sem spurði hvort það væri hægt að gefa þau saman í versluninni. Af einhverjum ástæðum hafði búðin eitthvert sérstakt gildi fyrir þau. Þau komu ásamt svaramönnum og við tókum þátt í athöfninni og drukkum svo kampavín með þeim að lokinni athöfn. Þetta kannski sýnir að búðin er eitthvað meira en bara verslun með hljómplötur.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×