Innlent

Bannað að birta pólitískar tilkynningar nema frá Sjálfstæðisflokknum

Jakob Bjarnar skrifar
Sara Óskarsson, þriðja frá vinstri meðal mótmælenda vina sinna, furðar sig á því sem hún kallar hræsni á Seltjarnarnesi.
Sara Óskarsson, þriðja frá vinstri meðal mótmælenda vina sinna, furðar sig á því sem hún kallar hræsni á Seltjarnarnesi.
Sara Óskarsson, Pírati og aktívisti, furðar sig mjög á því sem hún kallar hræsni á Seltjarnarnesi, nánar tiltekið í Facebookhópnum „Íbúar á Seltjarnarnesi“.

„Svo mikill tvískinnungur hjá XD svo oft,“ segir hún mædd og trúir félögum sínum í Pírötum á Facebook fyrir raunum sínum inni á þessum Facebook-hópi Seltirninga. En, á Seltjarnarnesinu ríkir Sjálfstæðisflokkurinn og er með öruggan meirihluta í bæjarstjórn.

Sara greinir Pírötum frá raunum sínum inni á Facebookhópi Seltirninga, en þar ráða Sjálfstæðismenn lögum og lofum, í stóru sem smáu, ef marka má Söru.
„Inn á þennan hóp Íbúar á Seltjarnarnesi (sem á að vera bara samskiptahópur fyrir nesbúa) mátti sko ALLS ekki setja neinar pólitískar tilkynningar fyrir Pírata eða neina framboðsfundi né neitt áður,“ segir Sara. Og greinir frá því að hún hafi margreint að setja þar inn upplýsingar um Píratafundi.

„En því var öllu eytt af admin hraðar en þú gast sagt Sjálfstæðisflokkurinn. Nú er einn admin sjálf í framboði fyrir D á nesinu og er byrjuð að skella svona inn,“ segir Sara og veit ekki hvort hún er að koma eða fara: „Hálftryst bara og vandró.“ En, um er að ræða tilkynningu um fund á vegum Sjálfstæðisflokksins um samgöngumál.

Sara sjálf skrifaði vitaskuld athugasemd við téða tilkynningu að sér finnist athyglisvert að nú megi allt í einu setja inn í hópinn pólitískar auglýsingar. „En gott að vita af því og þá vænti ég að það verði jafnræði í þeim efnum, ekki satt?“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×