Glamour

Metnaðargræðgi Korkimon

Ritstjórn skrifar
Mynd/Anna Maggý
Helgarnar á að nýta í að næra líkama og sál - með því til dæmis að fara á listasýningar og nóg er í boði. 

Við mælum með þessari hér. Metnaðargræðgi sem er fyrsta einkasýning myndlistakonunnar Melkorku Katrínar eða Korkimon sem opnar í dag í Kjallaranum í Geysi heima. Melkorka útskrifaðist úr háskólanum Sarah Lawrence College í fyrra og hefur verið starfandi listamaður síðan. 

Listaverk Korkimon bera titla sem ríma við sköpunarstíl hennar; hvatvísi og röð mistaka með skipulögðum hætti. Í þessari sýningu spyr hún til dæmis spurningarinnar, hvers vegna þarf alltaf að vera gagn af hlutum? Hvers vegna þurfum við að setja allt í hólf? Skilgreina hvern einasta hlut? Hugsun um gagnleika allra hluta kemur í veg fyrir framfarir og nýjungar. Tilgangurinn er ekki endilega neinn. Þannig hafnar Korkimon leikreglum samfélags fullorðinna

Á sýningunni er að finna 6 teikningar og 5 skúlptúra. 

Hægt er að lesa meira um sýninguna hér. 






×