Íslenski boltinn

Þórir um Lengjubikarinn: „Ástæðan er HM“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Margir hafa furðað sig á því að flest íslensku félögin, í tveimur efstu deildunum karlamegin, spila ekki keppnisleik í um mánuð þangað til að Íslandsmótið hefst. Einungis undanúrslitin og úrslitin eru eftir þegar mánuður er þangað til flautað verður til leiks í Pepsi-deild karla.

Þórir Hákonarson, fyrrum framkvæmdarstjóri KSÍ og núverandi meðlimur stjórnar í samtökunum Íslenskur toppfótbolti segir að það séu eðlilegar skýringar á og menn hefðu getað komið athugasemdum á framfæri mun fyrr en nú.

„Ég hef fylgst með þessari umræðu og menn þurfa að hafa ákveðna hluti á hreinu. Mótanefndin setti mótið upp og sendi út í byrjun desember og félögin gátu gert athugasemd þá,” sagði Þórir í samtali við Guðjón Guðmundsson í kvöldfréttum Stöðvar 2.

„Ástæðan fyrir því að þetta er með öðrum hætti núna en oft áður er HM. Það er nokkuð langur tími sem við getum ekki spilað og þurftum við því að færa bikarkeppnina framar. Sum fyrstu deildarliðin sem eru að spila með liðunum í efstu deildinni í Lengjubikarnum eru að spila í bikarnum um miðjan apríl.”

„Auk þess þá kemur páskafrí og utanferðir félaga eru frá 20. mars og síðustu liðin eru að koma heim í kringum 20. apríl. Það er margt sem kemur til að það þarf að færa mótið; byrja fyrr og hætta því seinna,” en er hægt að tala um klúður?

„Í mínum huga er þetta alls ekki klúður. Það er verið að bregðast við sérstökum aðstæðum. Reglugerð um Lengjubikarinn tekur breytingum frá ári til árs og það er enginn að segja að fyrirkomulagið verði það sama og næsta ári. Ég er einnig sannfærður um það að það verði ekki sama á næsta ári.”




Fleiri fréttir

Sjá meira


×