Innlent

Einstakt samband Baldvins og Védísar

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Einstakt samband hefur skapast á milli þrettán ára hestastelpu í Ölfusi og hestsins Baldvins sem er orðinn 22 ára gamall og ætti að vera komin í frí frá keppnum sökum aldurs. Það er þó ekki raunin því þau sigra allar keppnir sem þau taka þátt í.

Á bænum Sunnuhvoli í Ölfusi snýst allt um hesta þar sem Védís Sigurðardóttir, heimasætan á bænum hefur vakið mikla athygli fyrir árangur sinn á keppnisvellinum með hestinn Baldvin sem er 22 vetra sem lítur þó alls ekki út fyrir að vera orðinn svona gamall. Védís og Baldvin þjálfa sig jafnt saman í reiðhöllinni á Sunnuhvoli eða á túninu við bæinn.

„Hann er mjög skemmtilegur hestur og hann er með mjög mikinn karakter.  Hann hefur eiginlega kennt mér allt sem ég kann á hestbaki“, segir Védís og bætir við að þrátt fyrir háan aldur sé Baldvin í mjög góðu standi enda hefur alltaf verið hugsað mjög vel um hann sem skiptir mjög miklu máli.

Védís passar að kemba Baldvin vel á hverjum degi og eftir reiðtúra fer hann á sérstakt víbragólf í hesthúsinu þar sem hann stendur rólegur undir hitalömbum.

Védís hefur nánast unnið allar keppnir sem hún hefur keppt í á Baldvini síðustu ár en hún hefur séð um þjálfun hans síðustu fimm ár.Vísir/Magnús Hlynur Hreiðarsson
Anna Björg Níelsdóttir, móðir Védísar segir samband stelpunnar og Baldvins einstakt.

„Það er rosalega gott samband á milli þeirra og hann leitar eftir henni, bæði í hesthúsinu og þegar það er verið á mótum. Hesturinn  er svo vakandi fyrir umhverfinu að hann leitar í styrk til Védísar sem segir okkur að það er sterkt samband á milli knapa og hests“.

En ef einhver býður rosalega gott verð í Baldvin og vill kaupa hann, er hann þá til sölu?

„Nei, klárlega ekki, hann verður það aldrei“, segir Védís.

Anna Björk segir að Baldvin sé sérvitrasti hesturinn á Sunnuhvoli því hann þolir ekki þegar aðrir en Védís eru að vinna í kringum hann, t.d. þegar Siggi, pabbi Védísar er í smíðasvuntunni með málbandið sitt þá hættir Baldvin alltaf að éta heyið sitt og snýr sér öfugt í stíunni. Í lokin má geta þess að Védís á að fermast í vor, og hvað haldið þið, auðvitað verður fermingarveislan haldin í hesthúsinu í nálægð við Baldvin og hina hestana í húsinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×