Lífið

Arnar Grant réði við hraðann í Lilju þegar þau dönsuðu Jive

Stefán Árni Pálsson skrifar
Arnar og Lilja tóku þetta alla leið.
Arnar og Lilja tóku þetta alla leið.
Arnar Grant og Lilja Guðmundsdóttir þóttu standa sig mjög vel í fyrsta þættinum af Allir geta dansað sem var í beinni útsendingu á Stöð 2 í gærkvöldi. Saman dönsuðu þau Jive og voru dómararnir nokkuð hrifnir.

Allir geta dansað er nýr íslenskur skemmtiþáttur í beinni útsendingu byggður á hinum geysivinsælu þáttum Dancing with the Stars.

Í þáttunum keppa tíu þjóðþekktir Íslendingar í dansi en þeir eru paraðir saman við tíu fagdansara og eitt par stendur uppi sem sigurvegari.

Kynnar í þáttunum eru Sigrún Ósk Kristjánsdóttir og Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir. Dómarar eru Selma Björnsdóttir, Karen Reeve og Jóhann Gunnar Arnarsson. Hér að neðan má sjá dansinn frá Arnari og Lilju. Þau fengu samtals 13 stig í einkunn frá dómurunum en í næstu viku dansa þau tangó.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×