Fótbolti

Þjálfari Napoli með karlrembustæla

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sarri var með óþarfa stæla.
Sarri var með óþarfa stæla. vísir/getty
Karlkyns íþróttafréttamenn á Ítalíu tóku upp hanskann fyrir kvenkyns kollega sinn er þjálfari Napoli var með stæla við konuna.

Napoli er að missa af lestinni í baráttunni um ítalska meistaratitillinn og þjálfari liðsins, Maurizio Sarri, tók því ekki vel er kona spurði hann út í titilbaráttuna.

„Þú ert kona og því ætla ég ekki að segja þér að fokka þér,“ sagði Sarri en karlarnir í blaðamannafundarherberginu skömmuðu hann fyrir karlrembu.

Umboðsmaður Sarri hefur verið að reyna að gera gott úr málinu og sagði að skjólstæðingur sinn hefði bara verið að grínast. Alltaf léttir kallarnir á Ítalíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×