Lífið

Daði Freyr og Hugrún í nautaati á dansgólfinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frábærlega gert hjá þeim.
Frábærlega gert hjá þeim.
Hugrún Halldórsdóttir og Daði Freyr Guðjónsson fóru mikinn í dansþættinum Allir geta dansað í beinni útsendingu á sunnudagskvöldið en þau dönsuðu Paso Doble með miklum tilþrifum. Paso Doble er dans sem byggður er á hugmyndinni um nautaat.

Parið fékk samtals 16 stig í einkunn frá dómurunum og þóttu standa sig vel. Allir geta dansað er nýr íslenskur skemmtiþáttur í beinni útsendingu byggður á hinum geysivinsælu þáttum Dancing with the Stars.

Í þáttunum keppa tíu þjóðþekktir Íslendingar í dansi en þeir eru paraðir saman við tíu fagdansara og eitt par stendur uppi sem sigurvegari.

Kynnar í þáttunum eru Sigrún Ósk Kristjánsdóttir og Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir. Dómarar eru Selma Björnsdóttir, Karen Reeve og Jóhann Gunnar Arnarsson. Hér að neðan má sjá dansinn frá Hugrúnu og Daða Frey.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×