Lífið

Hrafnhildur og Jón endurléku frægt Grease atriði á dansgólfinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hrafnhildur og Jón fengu 16 stig frá dómnefndinni.
Hrafnhildur og Jón fengu 16 stig frá dómnefndinni.
Hrafnhildur Lúthersdóttir og Jón Eyþór Gottskálkson fóru mikinn í dansþættinum Allir geta dansað í beinni útsendingu á sunnudagskvöldið en þau dönsuðu Quick Step með miklum tilþrifum.

Saman dönsuðu þau við lagið You're the one that I want úr kvikmyndinni Grease. Parið fékk samtals 16 stig í einkunn frá dómurunum eftir dansinn og voru dómararnir mjög ánægðir með útkomuna. Hrafnhildur og Jón voru fyrst á sviðið á sunnudagskvöldið.

Allir geta dansað er nýr íslenskur skemmtiþáttur í beinni útsendingu byggður á hinum geysivinsælu þáttum Dancing with the Stars.

Í þáttunum keppa tíu þjóðþekktir Íslendingar í dansi en þeir eru paraðir saman við tíu fagdansara og eitt par stendur uppi sem sigurvegari.

Kynnar í þáttunum eru Sigrún Ósk Kristjánsdóttir og Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir. Dómarar eru Selma Björnsdóttir, Karen Reeve og Jóhann Gunnar Arnarsson. Hér að neðan má sjá dansinn frá Hrafnhildi og Jóni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×